Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitarmann sem keyrt var utan í á Reykjanesbraut í dag vera bólginn og lemstraðan en ekki illa meiddan. Þá segir aðstoðarlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að það að fólk hafi hlustað á tilmæli hafi skipt sköpum fyrir störf viðbragðsaðila í dag.