Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fær milljónir dollara í skaðabætur frá Meta og Google

Tæknifyrirtækin Meta og Google þurfa að greiða ungri konu milljónir bandaríkjadala í skaðabætur. Hún stefndi þeim fyrir samfélagsmiðlafíkn og segist hafa orðið háð samfélagsmiðlum þegar hún var sex ára. VARÐ HÁÐ YOUTUBE ÞEGAR HÚN VAR 6 ÁRA Kviðdómur í Los Angeles í Kaliforníu dæmdi fyrirtækin Meta, sem á Facebook og Instagram, og Google, móðurfyrirtæki YouTube, til að greiða tvítugri konu, sem gengur undir nafninu Kaley, samtals sex milljónir dala, rúmlega 765 milljónir íslenskra króna, í skaðabætur. Meta greiðir sjötíu prósent og Google þrjátíu prósent.Kaley segist hafa orðið háð YouTube þegar hún varð sex ára og Instagram þegar hún var níu ára. Fíknin hafi haft ýmis áhrif á heilsu hennar. Við tíu ára aldur hafi hún orðið þunglynd og byrjað að skaða sjálfa sig. Hún greindist með líkams
Fær milljónir dollara í skaðabætur frá Meta og Google

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta