Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögregla rannsakar atvik þar sem ekið var á björgunarsveitarmann

Atvik þar sem ekið var á björgunarsveitarmann við lokunarpóst á Reykjanesbraut í morgun er orðið lögreglumál. Jón Þór Víglundsson segir vitað hver var að verki. Björgunarsveitir séu slegnar yfir atvikinu.„Þarna gerist það að það nálgast bíll lokunarpóstinn og björgunarsveitarmaður bendir honum að stöðva til að ræða við sig. Þá eykur bílstjórinn ferð og og björgunarsveitarmaðurinn stígur frá en nær ekki að stíga nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir hliðarspeglinum á bílnum sem slæst harkalega í útrétta hönd hans,“ segir Jón Þór.Jón Þór segir björgunarsveitarmanninn hafa þurft að fá aðhlynningu eftir atvikið en að hönd hans sé ekki brotin. Jón Þór segir atvikið engan veginn í lagi.„Þarna er björgunarsveitarfólk að vinna í umboði lögreglu og Vegagerðar að hluta. Það er enginn að gera þ
Lögregla rannsakar atvik þar sem ekið var á björgunarsveitarmann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta