Spegilllinn hefur síðustu tvo daga aflað sér upplýsinga um Höfðatorgsmálið sem er litið alvarlegum augum innan lögreglunnar. ÞRETTÁN MEÐ RÉTTARSTÖÐU SAKBORNINGS Tveir menn sæta gæsluvarðhaldi, grunaðir um grófa líkamsárás og mögulega tilraun til manndráps í bílakjallaranum undir Höfðatorgi. Bílakjallarinn hefur verið vinsæll samkomustaður hjá ákveðnum hópi fólks sem hefur sótt þangað skjól frá veðri og vindum.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru báðir mennirnir sem eru í haldi erlendir ríkisborgarar, annar er frá Palestínu, hinn er fæddur í Svíþjóð en á foreldra frá Sómalíu. Alls eru þrettán með réttarstöðu sakbornings.Eftir því sem fréttastofa kemst næst snerust átökin um nokkur hundruð þúsund króna skuld og þeim lauk með því að Land Rover Defender-jeppa var ekið á einn þeirra sem ætla