Hálka og snjóþekja á vegi og brotinn bílstóll eru meginorsök þess að barn á öðru ári lést í bílslysi í Borgarfirði í fyrra. ÚRSKURÐUÐ LÁTIN VIÐ KOMU Á SPÍTALA Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur skilað af sér skýrslu vegna áreksturs rútu og fólksbíls við gatnamót Vesturlandsvegar og Hringvegar í Borgarfirði 6. mars í fyrra.Tvö voru í bílnum, ökumaður og stúlka á öðru ári, en fjórtán manns voru í rútunni. Ökumaður bílsins slasaðist talsvert og hlaut stúlkan fjöláverka. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti stúlkuna og flutti hana með þyrlu á Landspítalann, þar sem hún var úrskurðuð látin. Einn farþegi rútunnar slasaðist lítillega í slysinu og var fluttur á sjúkrahús. Aðra sakaði ekki. NÁÐI EKKI AÐ STÖÐVA BÍLINN VEGNA HÁLKU Í skýrslunni er aðdragandi slyssins reifaður. Fólksbíllinn ók suðaus