Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þingið samþykkir umfangsmikinn efnahagspakka til að bregðast við áhrifum stríðsins

Spænska þingið samþykkti í dag umfangsmikinn aðgerðapakka að verðmæti fimm milljarða evra, jafnvirði 720 milljarða króna, til að bregðast við verðhækkunum tilkomnum vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Meðal annars verður virðisaukaskattur lækkaður á jarðgas og eldsneyti um sem nemur jafnvirði allt að rúmra 43 króna. Það þýðir að áfylling á meðalfólksbíl lækkar um 2.900 krónur tæpar. Þingheimur samþykkti ráðstafanirnar með 175 atkvæðum gegn 33 en 141 sat hjá. Forsætisráðherrann Pedro Sanchez segir aðgerðunum ætlað að vernda framleiðslufyrirtæki og það fólk sem er í hvað viðkvæmastri stöðu. Auk þessa fá flutningafyrirtæki, bændur og sjómenn beinan eldsneytisstyrk að jafnvirði um 29 króna á hvern eldsneytislítra. Bensínverð hefur hækkað í 259 krónur lítrinn úr 216 krónum 28. febrúar þegar Ísr
Þingið samþykkir umfangsmikinn efnahagspakka til að bregðast við áhrifum stríðsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta