Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

McCartney gefur út nýtt lag þrungið minningum frá Liverpool fyrir daga Bítlanna

Nýtt lag breska tónlistarmannsins Paul McCartney leit dagsins ljós í dag og tilkynnti hann um útgáfu fyrstu breiðskífunnar um fimm ára skeið. Bítillinn fyrrverandi er einhver farsælasti tónlistarmaður sögunnar og segist aldrei hafa litið jafnt djúpt í eigin barm og á plötunni The Boys Of Dungeon Lane, sem kemur út 29. maí. Dungeon Lane er skammt frá æskuheimili McCartneys í fæðingarborginni Liverpool. Hann ætlar að bjóða hlustendum í tímaferðalag til Liverpool fortíðarinnar og rifja upp ævintýri þeirra Johns Lennon og Georges Harrison áður en þeir ungir menn hlutu heimsfrægð snemma á sjöunda áratugnum. Fyrsta lagið heitir Days We Left Behind og er þrungið endurminningum sem McCartney segir í raun vera grunn allrar textasmíðar. „Það eru svo margar minningar frá Liverpool. Við áttum ekki mik
McCartney gefur út nýtt lag þrungið minningum frá Liverpool fyrir daga Bítlanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta