Forstjóri Icelandair telur að með markvissum aðgerðum sé hægt að koma í veg fyrir að Seðlabankinn sjái sig knúinn til að hækka stýrivexti í maí og hann lækki í stað vexti. Til þess þyrfti að umbylta vinnumarkaðsmódelinu, efla valdheimildir Ríkissáttasemjara og leggja alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld. Til að sýna áherslurnar í verki mætti fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB um ár.