Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í henni kemur fram að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Meðal hagræðingaraðgerða sem hann boðar er fækkun stöðugilda hjá ríkinu um eitt prósent.