Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Leiðtogar Íslands, Noregs og Finnlands vilja enn auka í stuðning við Úkraínu

Alexander Stubb Finnlandsforseti og forsætisráðherrar Íslands og Noregs, Kristrún Frostadóttir og Jonas Gahr Støre, eru sammála um að brýnt sé að halda áfram stuðningi við Úkraínumenn. Leiðtogafundur JEF – Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar stendur yfir í Helsinki, höfuðborg Finnlands. Stubb agði fundinn til að treysta samvinnuna og auka enn í stuðning við Úkraínu. JEF hefur verið vettvangur hernaðarsamvinnu Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna, Hollands og Bretlands frá árinu 2014. Alexander Stubb sagði fundinn hafa sýnt og sannað mikilvægi samstarfsins. Kristrún Frostadóttir sagði örlög þeirra í baráttunni við innrásarherinn marka hvers eðlis Rússland verður að ári þegar leiðtogar Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar hittast í Reykjavík. Hún áréttaði jafnframt þann kraft sem lægi í viðskipt
Leiðtogar Íslands, Noregs og Finnlands vilja enn auka í stuðning við Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta