Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kvíðir því að fylgjast með næstu atvinnuleysistölum

Í Þetta helst í dag er áfram fjallað um atvinnuleysi og atvinnuhorfur hér á landi. Skráð atvinnuleysi í síðasta mánuði var 4,9 prósent og stóð í stað á milli mánaða. Sjónum er sérstaklega beint að atvinnuleysi á Suðurnesjum þar sem það er mest, 8,8 prósent.Formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis segir félagsmenn vera svartsýnni á atvinnuhorfur á svæðinu en áður. Hún telur að færri komi hingað til lands vegna efnahagsástands og óvissu.„Við erum vön þessum sveiflum og fólk er jafnvel alveg vant því að það er í einhverri vinnu í sex mánuði, fer svo jafnvel í aðra vinnu næstu sex mánuði, og síðan í sína vinnu aftur, en nú talar fólk um það að þau séu ekki að fá störfin sín aftur og jafnvel ekki að fá nein svör þannig að mér finnst fólk vera svartsýnna með það hvort að það
Kvíðir því að fylgjast með næstu atvinnuleysistölum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta