ÞORMÓÐUR, MARON BIRNIR OG ALASKA 1867 – STOPPA TÍMANN Þann 20. mars gaf Þormóður út breiðskífuna Meira þar sem er býsna gestkvæmt. Meðal gesta eru Friðrik Dór Birnir, Emmsjé Gauti og Króli. Í laginu sem fer best af stað á streymisveitum eru það Maron Birnir og Alaska 1867 sem kíkja í stúdíó til Þormóðs og taka Stoppa tímann. UNDIRALDAN FIMMTUDAGINN 26. MARS Að venju er af nægu að taka í nýrri íslenskri tónlist þessa vikuna og meðal þeirra sem bjóða upp í dans eru Þormóður, Maron Birnir og Alaska 1867, Birnir, Flott og Hreimur. PATRIK SNÆR ATLASON – ÞÚ ERT EKKI HÉR Þú ert ekki hér er fyrsta lagið á nýrri plötu Patriks Snæs Atlasonar og setur tóninn fyrir söguna sem platan segir. Lagið fjallar um söknuð, missi og tómarúmið sem situr eftir þegar manneskja sem skiptir mann miklu máli er