Stjórnarmyndunarviðræður undir forystu Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur hefjast á morgun.Henni var veitt stjórnarmyndunarumboð þrátt fyrir að fylgi Jafnaðarmannaflokks hennar hafi ekki verið minna síðan 1903. Hinir stjórnarflokkarnir Venstre og Moderaterne, töpuðu allir fylgi í þingkosningunum á þriðjudag.DR segir Frederiksen ætla að hitta leiðtoga þeirra flokka sem hún helst vilji starfa með auk Venstre og Íhaldsflokksins. Fyrstu fundirnir verða haldnir í forsætisráðneytinu en DR segir endanlega dagskrá ekki hafa verið birta.Dagurinn hefst með ríkisstjórnarfundi og að því búnu verða leiðtogar flokkanna kallaðir til fundar við forsætisráðherrann, hver af öðrum.Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne og sitjandi utanríkisráðherra, kveðst mæta til viðræðna með opnum huga. Hann