Fjármála- og efnahagsráðherra segir engin áform um að bakka með frumvarp hans um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna þrátt fyrir þrýsting verkalýðsfélaga þar um.Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins. Tilefni fyrirspurnarinnar var auglýsing sem birtist í Morgunblaðinu frá BSRB, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kennarasambandi Íslands og góðáminning.is.Auglýsingin er í formi uppsagnarbréfs þar sem segir að starfskrafta Daða Más sé ekki lengur óskað og að uppsögnin taki gildi samdægurs. Þar sem áminningarskylda hafi verið afnumin gefist ráðherra ekki tækifæri til að bæta ráð sitt. „Mistök í starfi eru því ekki lengur liðin. Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði. Á þeirri forsendu hefur verið tekin ákvörðun