Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Raskanir á þjónustu Reykjavíkurborgar vegna veðurs

Töluverð röskun verður á þjónustu Reykjavíkurborgar á meðan verstað veðrið gengur yfir á morgun og veðurviðvaranir eru í gildi.Í tilkynningu frá borginni segir að áhersla verði lögð á að þjónusta við viðkvæma hópa skerðist ekki.Í grunn- og leikskólum verður lágmarksopnun með fáu starfsfólki.Raskanir gætu orðið á heimaþjónustu Reykjavíkurborgar og dagskrá félagsstarfs. Neyðarskýli verða opin en loka ekki á milli 10 til 17 eins og vant er. Að auki verður aksturþjónusta fyrir fatlað fólk verður í lágmarki.Sundlaugar verða lokaðar í fyrramálið en stefnt er að því að opna þær, söfn og menningarhús eftir að veðurviðvörun fellur úr gildi.Von er á vonskuveðri víða um land í fyrramálið.RÚV / Ragnar Visage
Raskanir á þjónustu Reykjavíkurborgar vegna veðurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta