Ítrekuð mál, sem varða kynferðisbrot á leikskólum eru áfall fyrir allt samfélagið, segir Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar sem aðstoðar leikskóla þar sem slík mál hafa komið upp.„Hlutverk mitt í þessum málum hefur verið almenn sálgæsla fyrir foreldra og starfsfólk,“ segir Indíana. Spurð hvaða leikskólar hafi leitað ráðgjafar hennar segir hún að auk leikskóla í Reykjavík séu það leikskólar á Akranesi, Akureyri og í Garðabæ. MÁL Á SEX LEIKSKÓLUM HAFA VERIÐ TIL RANNSÓKNAR Síðustu mánuði hafa mál, þar sem grunur er um að leikskólastarfsmaður hafi brotið gegn leikskólabarni og varða sex leikskóla víða um land, verið til rannsóknar hjá lögreglu.Starfsmaður á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík sætir ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni á leikskólan