Gunnlaugur Kárason, kennari og viðskiptafræðingur, leiðir lista Miðflokksins í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningunum í vor.Framboðslisti flokksins hefur verið staðfestur af kjördæmastjórn.Annað sæti listans skipar Rúnar Fossádal Árnason rannsóknarlögreglumaður og það þriðja Sigrún Þorsteinsdóttir, þjónustufulltrúi og félagsliði.