Röskun verður á skólastarfi á höfuðborgarsvæðinu á morgun vegna veðurs. Þetta sagði Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, deildarstjóri hjá almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu eftir fund með yfirmönnum skólamála hjá sveitarfélögunum.Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan fimm í fyrramálið og appelsínugul upp úr sjö. Viðvaranir falla úr gildi eftir hádegi.Þóra segir skólahald ekki verða með hefðbundnum hætti, en að skólarnir verði ekki lokaðir og muni taka á móti þeim börnum sem þurfa.„Við erum að biðja fólk að halda sig heima. Það er ekki hefðbundið skólastarf, en á sama tíma þá ætlum við að biðja fólk um að fylgjast með í fyrramálið. Þetta er veðurspá, við vitum aldrei hvernig aðstæður breytast þannig það skiptir höfuðmáli að fylgjast með.“