Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, segir bæði forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafa skipt um skoðun varðandi flatan niðurskurð. Nú vilji þau ólíkt því sem áður hefur komið fram, fara í flatan niðurskurð í nýrri fjármálaáætlun sem kynnt verður á morgun. Með því séu þau að fría sig pólitískri ábyrgð.