Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Öll hjúkrunarrýmin komin aftur í gagnið eftir eldsvoðann á Sléttuvegi

Öll 22 hjúkrunarrýmin sem loka þurfti á Hrafnistu á Sléttuvegi eftir að eldur kom upp þar í nóvember síðastliðnum hafa verið tekin í gagnið á ný. „Fólk er að flytja inn og við munum klára að fylla deildina í þessari viku,“ segir María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, við fréttastofu.Helmingur rýmanna var betur farinn eftir eldsvoðann og opnuðu þau í febrúar. Þau sem voru verr farin opnuðu á mánudaginn var með bráðabirgðainnréttingum til að flýta fyrir. „Það var allt gert til að geta opnað. Við áttum okkur alveg á því hvaða áhrif það hefur að loka öllum þessum rýmum fyrir heilbrigðiskerfið í heild sinni.“Eldur kviknaði út frá rafmagnstöflu á Hrafnistu á Sléttuvegi 18. nóvember síðastliðinn. María Fjóla segir að starfsfólk hafi unnið mikið þrekvirki við að koma íbúunum út og þeim var
Öll hjúkrunarrýmin komin aftur í gagnið eftir eldsvoðann á Sléttuvegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta