Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Drónar sem lentu í Eistlandi og Lettlandi voru frá Úkraínu

Drónar sem flugu inn í lofthelgi Eistlands og Lettlands í nótt og brotlentu þar voru úkraínskir en ekki rússneskir eins og fyrst var talið. Engan sakaði en minni háttar skemmdir urðu á skorsteini orkuvers í Eistlandi. Dróninn í Lettlandi sprakk en olli engum skemmdum.Í frétt eistneska ríkisútvarpsins segir að drónarnir hafi komið inn í landið frá Rússlandi en hafi verið hluti af drónaárás Úkraínu á rússnesku hafnarborgina Ust-Luga við Eystrasalt. Þar er líka haft eftir ríkissaksóknara landsins sem sagði ekkert benda til þess að drónanum hafi verið beint viljandi að Eistlandi.Stjórnarandstaðan í Eistlandi átaldi stjórnvöld fyrir slakar drónavarnir ríkisins. Uppbygging varna hafi tekið allt of langan tíma.
Drónar sem lentu í Eistlandi og Lettlandi voru frá Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta