Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vinsældir Trumps dvína enn

Stríðsrekstur í Mið-Austurlöndum virðist koma illa niður á vinsældum Donalds Trumps. Samkvæmt nýrri könnun Reuters og Ipsos eru 36% landsmanna ánægð með frammistöðu Trumps í starfi, sem er fjórum prósentustigum minna en var fjórum dögum áður.62% svarenda segjast óánægð með frammistöðu Trumps. Stríðið og efnahagsumhleypingarnar sem þeim fylgdu hafa leitt til hækkandi eldsneytisverðs þrátt fyrir gagnaðgerðir bandarískra stjórnvalda. Rétt um 29% landsmanna segjast ánægðir með hagstjórn Trumps, sem er sex prósentustigum minna en var í síðustu viku.AP / Mark Schiefelbein
Vinsældir Trumps dvína enn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta