Icelandair hefur aflýst eða frestað öllu millilandaflugi sem var áætlað í fyrramálið fram yfir hádegi, og frestað brottförum frá Norður-Ameríku í dag. Önnur félög sem fljúga áttu frá Keflavíkurflugvelli í fyrramálið hafa seinkað brottför fram yfir hádegi.Þetta segir í tilkynningu frá Icelandair. Þar segir að veðrið muni að öllum líkindum hafa áhrif á innanlandsflug fyrri part dags. Farþegum sem eigi flug á morgun hafi staðið til boða síðan í gær að færa flugið um einn dag til eða fráÍ tilkynningu Icelandair segir að farþegar sem áttu bókað með flugi sem hefur verið aflýst verði endurbókaðir og fái senda nýja ferðaáætlun.„Vegna umfangs röskunarinnar má búast við að endurbókunarferlið taki lengri tíma en venjulega.“Farþegar eru beðnir að fylgjast vel með skilaboðum frá félaginu. Þá er tíunda