Sláturfélag Suðurlands hagnaðist um 1.085 milljónir króna árið 2025. Það er aukning frá árinu áður þegar hagnaður nam tæpum 872 milljónum. Samstæðan skilaði bestu afkomu fyrir skatta frá stofnun SS árið 1907.Í ársreikningi segir að aukin sala allra megindeilda, aðhald í innkaupum og starfsmannakostnaði, lækkun fjármagnsgjalda og aukning fjármunatekna skýri betri afkomu.Rekstrartekjur félagsins námu 19,3 milljörðum króna. Heildareignir í árslok 2025 voru 15,4 milljarðar króna.RÚV