Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sá ekki fyrir sér að reka kjörbúð en hefur tekið við Jónsabúð á Grenivík

Erica Patricia Rivera hlær þegar hún rifjar upp að hafa beðið fyrri eigendur að láta sig vita þegar rekstur Jónsabúðar á Grenivík yrði seldur. Hún hafi sagt þetta í algjöru gríni. En svo var haft samband við Ericu og nú er hún tekin við búðinni.Rætt var við Ericu og dóttur hennar, Karol Brynju, í útvarpsþættinum Víðsvegar á Rás 1. Í þættinum var flakkað um Grenivík og nokkur fyrirtæki og atvinnurekendur tekin tali. „JÆJA, ALLT Í LAGI AÐ PRÓFA“ Erica segist í byrjun hafa verið hissa. Hana hafði vissulega lengi langað að reka eigið fyrirtæki en ekki séð fyrir sér að reka kjörbúð. Hún hugsaði síðan að það væri allt í lagi að prófa og bar tilboðið undir fjölskylduna.„Þið þurfið að hjálpa mér við þetta,“ sagði hún við þau. Fjölskyldan studdi öll við bakið á henni og hvatti hana áfram. Nú sta
Sá ekki fyrir sér að reka kjörbúð en hefur tekið við Jónsabúð á Grenivík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta