Ekki er fyllilega skýrt í lögum hver ber ábyrgð á líki ef engir vandamenn eru til staðar. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ingibjargar Isaksen, þingmanns Framsóknarflokksins.Ingibjörg spyr hver beri ábyrgð á líki eftir að læknir hefur staðfest andlát og gefið út dánarvottorð þangað til útför eða líkbrennsla fer fram.Sérstaklega er spurt hvernig þessu sé farið þegar hægt er að leita til venslamanns og þegar það er ekki hægt.Í svari dómsmálaráðherra segir að í lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu séu ákvæði um hvar og hvernig lík skuli geymd.Ekki sé í þeim að finna skýr og afdráttarlaus ákvæði varðandi hver beri ábyrgð á líkinu eftir að dánarvottorð hefur verið gefið út af lækni þangað til útför fer fram.Gert er ráð fyrir að vandamenn þess látna taki ýmsar ák