Ákvörðun um að hætta notkun ratsjárbúnaðar á Akureyrarflugvelli hefur vakið talsverða óánægju flugrekenda. Bæjarstjóri segist hafa áhyggjur af áhrifum sem breytingarnar hafi á innanlandsflug.Á Akureyrarflugvelli var á dögunum tekinn í notkun langþráður nýr aðflugsferill, sem í einföldu máli á að auka öryggi við lendingar á vellinum, svo hægt sé að nálgast flugbrautina úr minni hæð með öruggum hætti þó skyggni sé lítið.Samhliða var ákveðið að slökkva á fimmtíu og fimm ára gamalli ratsjá, sem Samgöngustofa hafði fjallað um 2022 að uppfyllti ekki kröfur um flugöryggi. Það er þó ekki svo einfalt að annar búnaðurinn leysi hinn af hólmi, því flugvélarnar verða að vera búnar ákveðnum tækjum til að geta nýtt nýja aðflugið og eins þarf að þjálfa áhafnir í notkun þess.Ákvörðunin um að hætta notkun r