Fylgdarakstur verður yfir Fagradal, frá Reyðarfirði kl. 18:00 og frá Egilsstöðum kl. 19:00. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is.Vegurinn um Fagradal er lokaður vegna snjóflóðahættu og verður honum lokað aftur að fylgdarakstri loknum. Hann verður svo ekki opnaður aftur í kvöld.Fylgdarakstur fer þannig fram að mokstursbíll fylgir umferð frá lokunarhliðum yfir heiðina. Umferð er óheimil nema í fylgd fyrrgreindrar bifreiðar.