Lögreglan í Þýskalandi og á Spáni hafer handtekið karl og konu sem grunuð eru um að hafa stundað njósnir í Þýskalandi fyrir Rússa.Þjóðverjar eru á meðal dyggustu stuðningsmanna Úkraínu í stríði landsins við Rússland. Því gruna yfirvöld að njósnir, skemmdarverk og upplýsingahernaður af hálfu Rússa hafi aukist þar í landi umtalsvert allt frá því stríðið hófst 2022.Yfirvöld í Þýskalandi hafa að undanförnu varað við því að Rússar reyni í auknum mæli að verða sér úti um svokallaða „einnota útsendara“ sem ætlað er að sinna njósnum og skemmdarverkum. Fólk sem hafi engan bakgrunn eða þjálfun í njósnastarfsemi sé ráðið í gegnum samfélagsmiðla til að framkvæma verkefni á borð við íkveikjur, skemmdarverk og njósnir í skiptum fyrir peninga. TÓKU UPP MYNDSKEIÐ AF MANNI SEM ÚTVEGAÐI ÚKRAÍNUHER ÁSÁRDRÓ