Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allt á kafi í snjó á Seyðisfirði

Hættustig vegna snjóflóðahættu hefur verið í gildi á Seyðisfirði síðan í gær. Þá voru hús rýmd og tíu manns þurftu að yfirgefa heimili sín.Fjarðarheiði er enn lokuð sem og flestir fjallvegir á austanverðu landinu.Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segist vona að hægt verði að fella rýmingar úr gildi í dag en það verði aðeins gert ef létti til.„Það eru rýmingar í gildi á Seyðisfirði og óvissustig á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu. Veðrið hefur mikið lagast frá því að það var sem verst í nótt en það hefur verið éljagangur og snjókoma í dag og blint til fjalla,“ segir Magni Hreinn.„Við höfum viljað fá fjallasýn til þess að meta aðstæður og þá vonandi að hægt sé að aflétta þessum viðbúnaði í kjölfarið, en það hefur látið bíða eftir sér þetta skyggni.“
Allt á kafi í snjó á Seyðisfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta