Kona sem er sænskur ríkisborgari hefur verið ákærð fyrir peningaþvætti með því að taka við illa fengnu fé en hún var með peningana meðferðis þegar hún var handtekin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Konan er á fimmtugsaldri og ákæran á hendur henni er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem væntanlega hefur ekki tekist að birta konunni ákæruna. Lesa meira