Ekki er skýrt í lögum hver skuli annast undirbúning útfarar og standa straum af kostnaði sem af henni hlýst ef dánarbú er eignarlaust. Þetta kemur fram í skriflegu svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ingibjargar Isaksen, þingmanns Framsóknarflokksins. Ingibjörg spurði hver beri ábyrgð á líki eftir að læknir hefur staðfest andlát og gefið út dánarvottorð þar til útför eða líkbrennsla fer...