Frá kjörstað í ráðhúsi Kaupmannahafnar.AP / Sergei GritsRétt rúmlega helmingur Dana er búinn að skila atkvæði sínu í kjörkassann. Þetta kemur fram í fréttavakt DR þar sem fylgst er með dönsku þingkosningunum. Kjörsóknin það sem af er degi er litlu meiri nú en í síðustu kosningum 2022.Þess ber þó að geta að inni í þessum tölum eru póstatkvæði sem eru öllu fleiri nú en í síðustu kosningum. Sérfræðingar telja að kjörsókn verði ívið lakari nú en fyrir fjórum árum.Kjörstaðir loka í Danmörku klukkan 7 að íslenskum tíma og þá verður gefin út útgönguspá.