Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjarskiptatruflanir í Ísafjarðardjúpi vegna bruna í endurvarpsstöð

Truflanir hafa verið á fjarskiptum í Ísafjarðardjúpi eftir að endurvarpsstöð á Bæjum á Snæfjallaströnd brann til grunna um helgina. Vonir standa til þess að hægt verði að ráðast í viðgerðir á morgun ef veður leyfir.Sjónvarps- og útvarpssendingar um loftnet hafa legið niðri og farsímasamband er ekkert á köflum, meðal annars frá Ögurnesi inn til Þernuvíkur. Tetrasamband og samband við Neyðarlínuna er einnig slæmt. ERFIÐAR AÐSTÆÐUR TÖFÐU VIÐGERÐIR Magnús Hauksson, rekstrarstjóri hjá Neyðarlínunni, segir að viðvörun hafi borist um fjarskiptabilunina að kvöldi 21. mars.„Viðvörunarkerfin létu vita að sambandið hefði dottið út, en þá var ekki fært á svæðið,“ segir Magnús og vísar til ófærðarinnar sem geisaði um allt land liðna helgi.Magnús segir aðstæður við endurvarpsstöðina hafa reynst erfið
Fjarskiptatruflanir í Ísafjarðardjúpi vegna bruna í endurvarpsstöð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta