Aukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum og því hefur þurft að synja mörgum umsækjendum, 18 ára og eldri, um skólavist í vinsælustu greinunum þar sem nemendur tíunda bekkjar ganga fyrir. Á þetta einnig við um þá sem hafa unnið við þá grein sem sótt er um í.Í nýlegri greiningu Samtaka iðnaðarins kemur fram að fleiri hundruð umsækjendum sé vísað frá iðnnámi vegna þess að skólarnir geti ekki tekið við öllum þeim sem sækja um.Fjallað er um Tækniskólann í þriðja þætti Kerfisins sem er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudögum.Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans segir að það sé misjafnt eftir greinum hversu margir sækja um. Síðasta haust bárust fjölmargar umsóknir um nám