Flokksleiðtogar ræða saman að loknum lokakappræðum í gærkvöld.EPA / Mads Claus RasmussenEkkert verður af sjónvarpsumræðum danskra flokksleiðtoga á DR og TV2 í Kristjánsborgarhöll á kosninganótt eftir að tíu af tólf flokkum afboðuðu sig. Þátturinn átti að vera á dagskrá klukkan eitt eftir miðnætti.Í sameiginlegri yfirlýsingu flokkanna tíu segir að umræðurnar séu óþarfar, ekki síst í ljósi þess að búið er að boða til umræðna fyrir hádegi á morgun.Troels Lund Poulsen leiðtogi Venstre segir við DR lítið vit í að sjónvarpa umræðuþætti þegar flestir Danir eru í fastasvefni.Mette Frederiksen forsætisráðherra og leiðtogi Jafnaðarmanna segir flokksleiðtogana nú þegar búna að verja dágóðum tíma í umræðuþætti í kosningabaráttunni.