Hættustig hefur verið á Seyðisfirði síðan í gær, hús voru rýmd vegna snjóflóðahættu og þurftu um tíu manns að yfirgefa heimili sín. Óvissustig er einnig í gildi á Austfjörðum öllum. FENGU INNI HJÁ VINUM OG KUNNINGJUM Fjallvegir á Austurlandi lokuðust í gær í miklum snjóbyl sem stóð í alla nótt og björgunarsveitir aðstoðuðu sjúkrabíl við að komast með sjúklingi frá Egilsstöðum til Akureyrar. Óvissustigi var lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum og á Seyðisfirði var lýst yfir hættustigi og hús rýmd. Á Seyðisfirði voru hús rýmd á reitum rétt utan við þorpið sjálft, má segja bæði norðan og sunnan megin í firðinum. Helgi Haraldsson, formaður björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði, segir að mikið hafi snjóað og skafið innanbæjar á Seyðisfirði í nótt. „Ég er að blása snjó hérna í g