Stéttarfélögin Viska og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa stofnað óhagnaðardrifið húsnæðisfélag, fyrst stéttarfélaga háskólamenntaðra. Formaður Visku segir það misskilning að háskólamenntaðir þurfi ekki aðstoð.Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður Visku, segir aðeins ellefu prósent félagsmanna falla undir viðmið um leigu almennra íbúða á vegum ríkis og sveitarfélaga, en að mun hærra hlutfall sé í húsnæðisvandræðum.„Og þá er í rauninni ekkert annað fyrir okkur að gera en að stofna húsnæðisfélag til þess að byggja lausnir fyrir félagsfólk,“ segir Brynhildur.„Orðræðan hefur verið oft að fólk sem er háskólamenntað þurfi ekki á aðstoð að halda og það er ekki satt. Það er mikið af háskólamenntuðu fólki sem er ekki að vinna á góðum launum og okkur ber að tryggja það að okkar fólk fái sam