Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir það hafa verið þung spor að hækka stýrivexti og segir vel mögulegt að landsmenn þurfi að búa sig undir frekari hækkun. Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentustig 18. mars og standa meginvextir bankans í 7,5%.Ásgeir segir vonir hafa staðið til þess að hægt yrði að halda áfram að lækka vexti.„Það voru þung spor að hækka vexti aftur,“ sagði Ásgeir í Silfrinu í kvöld. „Það sem hefur verið í gangi síðustu fimm ár er að það hefur verið gríðarlegur hagvöxtur á Íslandi. Laun hafa hækkað verulega, meira en í öðrum löndum. Við höfum séð gríðarlega mikla aukningu kaupmáttar.“Þegar stýrivaxtahækkunin var tilkynnt sagði Ásgeir að hana mætti rekja til hækkunar á opinberum gjöldum, afleiddra áhrifa og áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum markaði í