Þrettán hundruð manns hið minnsta hafa dáið úr hungri í flóttamannabúðum í stríðshrjáðu Tigray héraði Eþíópíu á síðastliðnum þremur árum.Afríkusambandið áætlar að minnst 600 þúsund manns hafi látið lífið í átökum milli stjórnarhersins og hersveita frá Tigray héraði á árunum 2020 til 2022.Um ein milljón manna lagði á flótta undan átökunum innan lands og leitaði skjóls í flóttamannabúðum.Stjórnandi hjálparstarfs í Tigray héraði segir í viðtali við AFP fréttaveituna að ástandið fari versnandi. Ekki berist nógu mikil aðstoð frá eþíópíska ríkinu og alþjóðleg hjálparsamtök hafi dregið úr sinni aðstoð. Hann segir að ástandið sé einna verst í flóttamannabúðum sem hýsa 150 þúsund manns.Eþíópísk stjórnvöld hættu fjárhagsstuðningi við Tigray hérað fyrir nokkrum mánuðum vegna aukinnar pólitískrar spen