Þau sem búa á herbergjasambýlum á vegum Reykjavíkurborgar hafa mörg hver beðið lengi eftir að fá sitt eigið heimili. Það var því gleðistund í dag, þegar íbúðakjarninn á Sólvallagötu 79 var formlega opnaður en þaðan flytur fólk af þremur sambýlum sem rekin hafa verið af borginni.Í samstarfi við Félagsbústaði hefur Reykjavíkurborg tekið 21 nýjan íbúðakjarna til notkunar frá árinu 2018. Á sama tíma hefur herbergjasambýlum smám saman verið lokað.Átta fengu afhenta lykla að nýjum séríbúðum í íbúakjarnanum Sólvallagötu í dag.Nýr íbúðakjarni fyrir fatlað fólk var opnaður á Sólvallagötu í Reykjavík í dag. Þangað flytja átta einstaklingar úr sambýlum í séríbúðir.