Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stjórnvöld verði að vinna með Bændasamtökunum verði aðildarviðræður samþykktar

Þriggja daga Búnaðarþing var sett á Hótel Natura við Reykjavíkurflugvöll fyrir hádegi að viðstöddum þingfulltrúum og gestum. Skammt er í að eins árs framlenging búvörusamninga verði tilbúin. Þeir kosta ríkissjóð um 20 milljarða króna á ári og framundan eru viðræður um nýjan samning.„Það er alveg ljóst að áskoranirnar sem eru framundan í landbúnaði eru sannarlega ekki séríslenskar en engu að síður áskoranir sem lúta að kynslóðaskiptum, sem lúta bara að almennri afkomu bænda og síðan áframhaldandi vinnu við að tryggja hér fæðuöryggi,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.„Við erum bara með gríðarlega sterka og mikilvæga atvinnugrein og höfum alla burði til að vinna þetta mjög vel.“ SLÁ VARNAGLA VARÐANDI ESB Bændasamtökin leggjast ekki gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst
Stjórnvöld verði að vinna með Bændasamtökunum verði aðildarviðræður samþykktar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta