Sænska ríkisstjórnin hyggst lækka skatta á bensín og dísilolíu til að bregðast við mikilli hækkun á heimsmarkaðsverði. Þetta kom fram á blaðamannafundi flokkanna fjögurra sem standa að Tidö-samkomulaginu í dag. Þar greindu leiðtogar flokkanna frá aðgerðum sem gripið verður til vegna áhrifa stríðsins í Mið-Austurlöndum á hagkerfi heimsins.Vegna hækkaðs raforkuverðs í Svíþjóð stendur til að niðurgreiða orkureikning heimila sem eru kynt með rafmagni um á bilinu þúsund til tvö þúsund krónur sænskar, eða rúmlega 13 þúsund til tæplega 27 þúsund íslenskar. Heildarkostnaður þessarar aðgerðar er talinn nema 2,4 milljörðum sænskra króna eða rétt tæpum 32 milljörðum íslenskra. ELDSNEYTISSTUÐNINGURINN KOSTAR 20 MILLJARÐA Skattar á bensín og dísil verða líka lækkaðir í fjárlagafrumvarpinu. Jimmy Åke