Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag, grunaður um hnífstunguárás í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. Sá sem varð fyrir árásinni, líka Íslendingur á þrítugsaldri, var fluttur á sjúkrahús en er ekki í lífshættu.Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir greindi fyrst frá.Ævar segir rannsókn málsins miða ágætlega og rannsóknardeildin telji sig vera með nokkuð góða mynd af því sem gerðist.