Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rannsaka meint kynferðisbrot gegn leikskólabarni á Krakkakoti

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið beiðni frá Barnavernd Garðabæjar um að hefja rannsókn á meintu kynferðisbroti gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Þetta staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, í samtali við fréttastofu.Bylgja segir rannsóknina á frumstigi. Hún geti ekki sagt til um hvort brotið hafi verið á einu barni eða fleirum eða hvort starfsmaður leikskólans liggi undir grun. Frekari upplýsingar verði ekki veittar að svo stöddu.Samkvæmt heimildum fréttastofu kom málið upp á fimmtudaginn í síðustu viku og hefur verið til rannsóknar hjá Barnavernd Garðabæjar. Foreldrar barna á leikskólanum voru boðaðir á fund í gærmorgun og þeir upplýstir um stöðuna.
Rannsaka meint kynferðisbrot gegn leikskólabarni á Krakkakoti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta