Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kannast ekki við viðræður við Bandaríkin um endalok átaka

Íranskir fjölmiðlar segja að engar viðræður eigi sér stað milli íranskra og bandarískra stjórnvalda um endalok átaka í Mið-Austurlöndum. Það hafa þeir eftir upplýsingum frá utanríkisráðuneyti landsins. Þetta sé aðeins bragð Trumps til að lækka orkuverð.Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því á Truth Social fyrr í dag að ráðamenn ríkjanna hefðu átt í gagnlegu samtali á síðustu tveimur dögum. Hann hefði því frestað fyrirhuguðum árásum á orkuinnviði Írans um fimm daga á meðan viðræður héldu áfram. Á laugardag hótaði hann að grípa til árása á orkuver landsins og gjöreyða þeim ef ekki yrði opnað fyrir umferð skipa um Hormússund.Eftir að Trump birti færslu sína lækkaði olíuverð á mörkuðum umtalsvert eða um nærri tíu prósent. HEITIR KRÖFTUGUM ÁRÁSUM EF EKKI TEKST AÐ SEMJA AFP-fréttaveit
Kannast ekki við viðræður við Bandaríkin um endalok átaka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta