Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Herbert Guðmundsson ásamt kór Keflavíkurkirkju

Hugmyndin að samstarfsverkefni Herberts og kórs Keflavíkurkirkju varð til fyrir Ljósanótt í Reykjanesbæ 2024. Herbert og Arnór Vilbergsson organisti unnu saman að kórútsetningum laga eins og Can’t Walk Away. Platan var tekin upp í stúdíói Jóhanns Ásmundssonar en kórinn í Keflavíkurkirkju til að fanga náttúrulega dýpt og bergmál kirkjunnar.Í samstarfi við Safnadeild RÚV var ákveðið að láta fjórar upptökur frá 1975 fylgja með, þar sem Herbert leikur með hljómsveitinni Eik. Hér kemur hann fram sem framsækinn rokkari með einni af athyglisverðustu hljómsveitum áttunda áratugsins en efnið hefur legið óhreyft í hálfa öld.Herbert Guðmundsson mætti í hljóðstofu til Atla Más Steinarssonar og ræddi nýjar og gamlar upptökur.
Herbert Guðmundsson ásamt kór Keflavíkurkirkju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta