Um 30 bílar sitja fastir á svæðinu frá Pétursey og austur að Vík. Þar á meðal eru talsvert margir bílar við afleggjarann niður í Reynisfjöru.Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu.Að sögn Jóns vinnur björgunarsveitin Víkverji í Vík í Mýrdal nú að því að fylgja bílalestinni til Víkur. Auk fólksbíla eru einnig rútur fastar á veginum og þurfa bílar á vegum björgunarsveitarinnar að ferja fólk úr þeim og til Víkur.Björgunarsveitir sinntu einnig útkalli á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna bíls sem sat fastur á Sandskeiði. Jón segir að verið sé að vinna í því að losa bílinn.