Bókin Ég bý í Risalandi byrjaði sem lokaverkefni í Myndlistarskóla Reykjavíkur en varð svo verðlaunabók sem sigraði Sólfaxa og hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Birna sagði frá ferlinu í Hvað ertu að lesa? á Rás 1. TÓK U-BEYGJU ÚR SJÁVARLÍFFRÆÐI Í LISTINA Frá unga aldri hefur Birna verið heilluð af myndlist. Hins vegar valdi hún praktísku leiðina í lífinu og lærði líffræði og seinna sjávarlíffræði. > „Svo bara á maður sér drauma,“ segir Birna og útskýrir hvernig hún færði sig yfir í listina. Með stuðningi frá fjölskyldunni skráði Birna sig í teikninám við Myndlistarskólann í Reykjavík. Í dag er hún mjög ánægð með þá ákvörðun því hún finnur að myndlistin er það sem hana langar að fást við. SETTI SIG Í SPOR KRAKKA TIL AÐ SJÁ ÞEIRRA SJÓNAHORN Í náminu tók Birna áfa