Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Grænland enn á dagskrá vestra

Grænland er í ferli, þannig hefur ástandinu verið lýst í kjölfar uppnámsins sem varð eftir yfirlýsingar Donalds Trumps um að Bandaríkin þyrftu yfirráð á Grænlandi til að treysta eigin varnir. Talað var um fundi embættismanna og leiðir til að finna niðurstöðu sem allir gætu sætt sig við. Og svo færðist athyglin annað.En miðað við orð Gregorys Guillot, yfirmanns Norðurherstjórnar Bandaríkjanna, í síðustu viku er Grænland enn á dagskrá vestra. Á fundi varnarmálanefndar Öldungadeildarinnar sagði Guillot að þörf væri á að minnsta kosti þremur landsvæðum á Grænlandi fyrir starfsemi Bandaríkjahers, meðal annars fyrir flugvélar, sérsveitir og sjóher.Guillot sagði núverandi aðstöðu á Grænlandi, þar á meðal herstöðina í Pituffik, gegna lykilhlutverki en ekki duga til ein og sér fyrir þá uppbyggingu
Grænland enn á dagskrá vestra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta